![]() |
|||||
|
|
| ||||
|
Opinber heimasíða Hróarskeldu Hróarskelda – Stærsta tónlistarhátíð Norður-Evrópu  Hróarskelda 2010 stendur yfir dagana 1. júlí-4. júlí. Upphitun hefst 27. júní.   Um Hróarskeldu: Hátíðin er sjálfstætt starfandi góðgerðarfélag og lætur allan ágóða renna til góðgerðar- og menningarmála. Hátíðin er skipulögð af hópi fólks sem kallar sig "The Roskilde Charity Society" og starfar allan ársins hring ásamt þúsundum sjálfboðaliða sem staðsettir eru víðs vegar um Evrópu. Tónlistardagskrá Hróarskeldu þykir með þeim bestu í heimi og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á hátíðinni er að finna allt frá frumlegri rokktónlist til suðrænnar sveiflu. Einnig er í boði ýmis konar þjónusta og dægradvöl, svo sem kvikmyndahús, listasýningar, íþróttir, götuleikhús, fataverslanir og plötubúðir svo fátt eitt sé nefnt. Hátíðin er staðsett rétt fyrir utan Roskilde sem er um 35 km fjarlægð frá Kaupmannahöfn.  
Tónlistin:Á hverju ári koma yfir 170 hljómsveitir fram á sjö sviðum á átta dögum, frá sunnudegi til sunnudags. Tjaldsvæðið opnar á sunnudeginum fyrir hátíðina og hefst tónlistardagskráin strax þann daginn á sviði sem er aðgengilegt af tjaldsvæðinu. Tónleikasvæðið sjálft opnar á fimmtudeginum kl. 17:00 og þá fyrst hefst fjörið sem endist fram á mánudagsmorgun.   Miðasali á Íslandi: Opinber miðasali Roskilde Festival hér á landi er midi.is . Innifalið í verði miðans er aðgangur að tjaldsvæðinu þar sem er að finna heitar og kaldar sturtur, eldunaraðstöðu, matarbása, bjórsölu, fatabása, kvikmyndahús, götuíþróttir, hjólabrettapall, nudd, farangursgeymslu og þannig mætti lengi telja.   Hægt er að kaupa miða rafrænt á heimasíðu Hróarskelduhátíðarinnar.   Kíktu á www.roskilde-festival.dk Upplýsingar um hljómsveitir, miða, tjaldsvæði, samgöngur o.fl. |
||
ÁFRAM... |
|||